Vinnuveitandi þinn skal skrá þig sem útsendan starfsmann og greiða tryggingagjöld í því landi sem fyrirtækið er skráð. Vinnuveitandi skal sýna fram á það með A1 eyðublaði sem sýnir að þú sért raunverulega tryggður hvað varðar vinnuslys, veikindi, eftirlaun, fjölskyldubætur o.s.frv.